Besta sænska stálið
Uppistaðan í hverju DUX rúmi er besta sænska stálið. Allt að 2,3 km af stálvír eru notaðir til að búa til DUX fjöðrunarkerfi í hvert rúm. |
Náttúrlegt latex
Gervifroða er ekki notuð í DUX rúmin. Okkar latex er náttúrleg afurð sem kemur úr Hevea eða "gúmmí" trénu. Náttúrulegt latex eykur langlífi og stuðning DUX rúmsins. |
Sterkasti viðurinn
Í DUX rúmin notum við furutré sem vaxa í norðurhluta Svíþjóðar. Trén vaxa mjög hægt og lifa ákaflega harða vetur og því eru árhringirnir mjög þéttir. Þessi hægi vöxtur gerir trén að einum af hörðustu furum í heimi. |
Fíngerð bómull
Bómullardúkarnir okkar eru ekki aðeins mjúkir heldur einnig ákaflega endingargóðir. Hinn mikli fjöldi af þráðum veitir munúðarfulla viðkomu og hinar löngu bómullartrefjar gera þá ákaflega sterka. |